þriðjudagur, 29. júlí 2008

Roadtrip

Stukkum til Þýskalands, til að kaupa bíl. ÉG og sigrún flugum til Frankfrt og tókum svo lest til Essen.
Þar sem við hittum Svenna sem að flaug til Eindhofen og keyrði til Essen.
Við skemmtum okkur konunglega og ævintýrin voru mikil. Fyrsti bíllinn ekki það sem við vildum annar bíllinn læstur inni en þriðji bíllin var sá sem við tókum heim.
Heimferðin var svakaleg, lögðum ekki af stað til Hollands fyrr en um 18:00 og komum loksins til $&%/&/( bæjarins sem að við vildum skila bílnum í en þá kom í ljós að það var ekki hægt.
ÞAnnig að endanleg stefna var tekin á Eindhofen sem var klukkutíma í hina áttina. :S Loksins þegar við skiluðum bílnum í Eindhofen. þurftum við að leggja af stað til Bergamo. Hmmm GPS tækið sagði að við yrðum komin þangað klukkan 07:00 um morguninn.
EKki allveg málið, þannig að við ákváðum að stoppa á leiðinni. Komum loks til Basel í Sviss. Stoppuðum þar og leituðum að hóteli..... MJÖG lengi.
of Svenninn minn fann loksins hótel. Eftir mjög skrýtna hótelvinnukalla í engum skyrtum og Hiltonhótel sem kosta mánaðarlaun.
Morguninn eftir fengum við morgunmat og hann var svoooooo góður.

Svo var keyrt áfram. Á leiðinni datt okkur í hug að stoppa í Interlaken. Þar er nebblega hægt að fara í PARAGLIDING. VIð gerðum það!!!!!!!!!!!!
ÞAð var svoooo gaman og svooo skemmtilegt! Stukkum framm af brekku í fallhlíf og svifum svo niður ég fór í hringi og kollhnísa, stelpan sem að flaug með mig er með þessa síðu hérna. Hún var svo hress og kúl. Spurði hvort mér fyndist þetta skemmtilegt og ég sagði auðvitað já! ÞAnnig að hún fór að gera miklu meira skemmtilegt, fleiri snúninga og fleiri kollhnísa. ÞAð var svoooo gaman!

Svo löbbuðum bið göngugötuna og borðuðum svissneskan mat. Loksins löggðum við af stað heim og þá keyrði Sigrún uppí alpana og ég þaðan til Ítalíu. Hraðbrautir og bílar á milljón :S

Loksins komum við heim með nýja burrann og erum voða glöð hérna í BERJAMÓ :)

mánudagur, 21. júlí 2008

:)

Mig langar í fleiri lög með honum!!!



föstudagur, 18. júlí 2008

:D

kíktum á klakann í 2 daga hittum þá sem við gátum og ekki þá sem við gátum ekki.
en það var æði að hitta mömmu :D
erum núna komin aftur heim í hlýjuna og þá er náttlega engin sól.
Er að bíða eftir svarifrá háskólanum í Bergamo kanski verð ég bara námsmaður í haust.

föstudagur, 11. júlí 2008

Fréttir

Svo ótrúlega margt búið að vera í gangi hjá okkur skötuhjúunum.
Ferðast, skoða, læra nýtt tungumál taka á móti gestum. Njóta þess að vera til og brosa útí heiminn. Já ég get með sanni sagt að ég hafi nóg að gera. Meira að segja þegar ég hugsaði, jæja núna tek ég mér smá pásu og geri ekkert í dag þá hafið ég fullt að gera. Skrifa blogg, þvo þvott, læra meiri ítölsku. Lesa um háskóla á netinu og svara emailum. Vá fólk hvað þið eruð rosalega dugleg að senda mér fréttir að heiman og um heiminn :D
Ég hafði varla við að svara kveðjum. Æði!
En já sagan vyrjar semsagt þannig að fyrir rúmum mánuði hentist ég af stað til ítalaíu að elta manninn minn. Sem er eins og flestir vita flugmaður hér í Bergamo. Við erum búin að fara út að borða á yndislegum stöðum og ég hef kynnst allveg frábæru fólki. Á mót mér tók Svenni með kastala íbúðina og ég varð prinsessa. Neil vinur Svenna úr skólanum bjó með okkur fyrst um sinn en svo var hann sendur til Marseille í Frakklandi þar sem að hann er beisaður. Við urðum semsagt tvö ein frekar snemma og við tók gestagangur og notarlegheit.
Bróðr Svenna kom og kíkti í heimsókn og stuttu seinna komu pabbi hans og Britt. Þess má geta að ég er enn túristi í þessu landi en virtist takast mjög vel að vera túrgæd um borg sem ég hef ekki kannað að neinu viti sjálf. Hér er stórkostegur bær, sem skiptist í efri og neðri bæ. Neðri bærinn er nýrri og hefur byggst pp á undanförnum árum en efri bærinn er síðan um 1200 fyrir krist.
Þar er svo margt að sjá og ég hef bara gamana af því að rölta um með gesti og sýna. Verst er að e´g veit ekki alveg nógu mikið um þetta allt. En það er bara gaman að uppgötva nýja hluti.
Við búum enn sem stendur í kastala í Stezzano sem er svona eiginlega einn af mörgum“Garðabæjum“ hér í kringum Bergamo. Planið er að finna nýja íbúð þar sem að þessi er bara með eittherbergi og okkur langar í eitthvða aðeins heimilslegra og hugsanlega minna myglað :P
Ójá! Vá hér vantar sko ekki heimilsgestina. Fyrir utan hann Finn sem býr undir rúminu okkar þá eru mjög skemmtilegir svartir blettir inná baðherberginu mínu sem að segja mér nýjar fréttir á hverjum degi. En mygla er ekki eitthvað sem ég þekki ekki. Bjó jú í Indónesí u í umþað bil ár þar sem að það var ekki gluggi á sífellt blauta baðherberginu okkar :D
Lífsreynd kona.
En svona til að leyfa ykkur að fá meira af fréttum. Hér komu semsagt gestir. Við skemmtum okkur konunglega og það bara bættist í. Vinir Svenna úr skólanum Frikki og Sibbi birtust hérna líka, en þeir eru beisaðir í Pisa. Þegar þessi vika var liðin var komið að smá pásu og þá var einhvern vegin ekki mikið að gera. En ..... ég fór út að skokk aog er komin á fullt í jóga. Self invented with a book en samt. Gengur vel. Við fórum í sólbað við vötnin.
Vinir okkar Davíð og Ýr búa rétt hjá flugvellinum Malpensa. OG þar eru sko nóg af vötnum og fallegum stöðum að sjá. Voða gott að vera þar og alveg æðislegt að skoða Gardavatnið og fleiri staði.
Svo stukkum við til Pisa. Það var æðislegt. Fórum á ströndina þar sem var líka trubblað. Enda orðin þokkalega brún og sæt. Gleymdi reyndar aftersun en það reddaðist. Svenni brann bara smá og við þoldum þetta. Eftir Pisa kom Anna Rakel eftir laaanga bið. Við versluðum og löbbuðum svo mikið að ég furða mig á því að við séum enn með hæla. En svo virðist sem að Anna Rakelsé lífsreyndur verslari og ég sé einkaþjálfari þannig að þetta gekk. Eftir nokkra daga hérna á ítalíu, datt okkur nú samt í hug að stökkva til Grikklands með telpuna. Þar sem að hún var bara búin að vera í Frakklandi, Englandi og Ítalíu á stuttum tíma, vantaði eiginlega fjórða landið. En svona öllu gríni sleppt, þá skelltum við okkur til Grikklands í þrjá daga, og lágum þar á sandlausu ströndinni, borðuðum dýrindis FETA og nutum lífsins í tætlur. Sáum Akropolis og ég lék túrista í smá tíma.
Ójá ég gleymi að minnast á myndavélina. Svo er mál með vexti að Svenni er búinn með þjálfunina sína þannig að hann er officially orðinn flugmaður, first officer hjá Ryanair. Rosa sjarmerandi gaur með tvær strípur á öxlunum í júníformi og svona :D
En já löng saga stutt í útskriftargjöf frá bróður sínum og fjölskyldunni hans, fékk hann rosa fína myndavél. Sem hann hefur varla sett frá sér frá því að hann fékk hana. En já. ÉG er fórnalamb nýs myndavélaeiganda. Hahahah
Eins og kanski flestir sjá sem haf akíkt á myndirnar. En í staðin er þetta vel documenteraður partuyr ævi okkar.
Sem stendur er Svenni í vinnutörn og ég sit heima og blogga. Fór í göngutúr en fór inn þegar sólin fór. Haahah já sólin fer stundum hérna. Sem betur fer!!! Úff ég myndi bráðna ef hún færi ekki stundum og léti mig í friði. Næst á dagskrá er að finna bíl því að það er morðfjár að keyra um á bílaleigubíl. Ójá ég er búin að keyra í útlöndum fyri rykkur sem að þekkið mig vel vitið þið að ég er últramega hrædd við það að keyra yfirhöfuð......
En já myndavélin ógurlega er búin að taka fult af myndum af okkur og þær getið þið fengið ef þið sendið mér bara línu. gudlaugerla@gmail.com
Eftir Grikkland var ferðinni haldið heim í Berjamó eins og ég vil kalla það.
Anna Rakel tíjaði sig til London og svo til Íslands að flytja en hún ætlar að kíkja til Feneyja bráðum og þá kíki ég hana þangað. Sigrún BJörg kemur svo 21.júlí og verður í einhverja 10 daga og svo fer bara að styttast í að ég komi heim á klakann. Í Smá heimsókn.

þriðjudagur, 24. júní 2008

;)

her er simanumerid mitt a italiu! This is my number in italy! Ini nomor saya di italy! +393284894250!!!!!!!

fimmtudagur, 5. júní 2008

Sumardrykkur dagsins

Ég ákvað að hvíla mig á lærdómi og taka mig til fá mér sæti fyrir framan allar 70 stöðvarnar í sjónvarpinu og samt var eitthvað sem að vantaði. Mig langaði í eitthvað að drekka, ekki boozt ég var ekki svöng, ekki gos mig langaði ekki að drekka eitthvað venjulegt, þannig að ég dróg framm , frosin jarðaber og sprite zero
skellti þessu í blandarann og svo í glas, grænt rör oní og þarna var ég komin með frábæran hollan/óhollan sumardrykk, ég meina sprite zero er alls ekki svo hræðilegt!!!

mánudagur, 2. júní 2008

Bella Italia!

Ég er á leiðinni alltaf á leiðinni, til þess að segjykkur hver fljótt er uns ég feer!!!!!!!!!!!


la la la laallllaallla! ok

flugmiði 10.júní og þá er ég farin. Þangað til er ég að læra eins og biluð fyrir lokapróf 7.júní og að borða hjá ömmu og afa og ingu frænku, röggu frænku og óla frænda, en svona er það ef að einhver vill hitta á mig þa´er bara að bjalla í 8692602 og vera í bandi.